Íslensk leitarvél fyrir vefverslanir

Leit sem skilur íslensku.

Ekki bara orðin, heldur ætlunina á bak við þau. Humla skilur beygingar, samsett orð, samheiti og merkingu, og raðar niðurstöðum eftir því sem viðskiptavinurinn spyr um.

DEMO vörur
Prófaðu:

Íslenska beygist. Venjuleg leit gerir það ekki.

Hefðbundin orðaleit
„vatnsheldum jökkum“
vatnsheldum ≠ vatnsheldurjökkum ≠ jakki
0 niðurstöður
Humla
„vatnsheldum jökkum“
vatnsheldum → vatnsheldur (beyging)jökkum → jakki (fleirtala, þgf.)
Allir vatnsheldir jakkar finnast, raðað eftir ætlun

Orðaleit + merkingarleit

Blandað mat: nákvæm orð og merkingarvigrar úr máltæknilíkönum, sameinað í eina röðun.

Íslensk málfræði innbyggð

Lemmun, beygingarmyndir, samsett orð, samheiti og algengar stafsetningarvillur, byggt á íslenskum málgögnum.

Stillanlegar viðskiptareglur

Lagerstaða, framlegð, vörumerki eða herferðir geta haft vægi í röðun, með AI-studdri endurröðun þegar við á.

Gagnaauðgun

Humla dregur eiginleika, flokka og einingar út úr vörutextum og gerir gögnin leitarhæf og síanleg.

API

Einföld tenging við verslunina þína

Humla tengist Verzla beint, Shopify eða WooCommerce með viðbót og öðrum kerfum í gegnum örugga vefþjónustu.

Verzlainnbyggt
Shopify & WooCommercePlugin
Sérsmíðuð kerfiREST API
POST /v1/search
{
  "indexName": "your-search-index",
  "query": "borvél",
  "hitsPerPage": 5,
  "analytics": true,
  "clickAnalytics": true,
  "searchSource": "autocomplete"
}

Leitarvélin Humla virkar með Algolia SDK - hvort sem þú sért að skrifa í leitarindex eða að lesa. Smíðað til að vera drop-in replacement.